Broskallinn..................

Gústi í sjónvarpiÉg held að einlægur aðdáandi Alonso á Íslandi númer eitt ætti að leita til Alonso og fá hjá honum skammt af þeim lyfjum sem hann er að taka þessa dagana. Það er rétt sem Gústi hefur haldið fram að Briatore hefur kreist fram brosi á Spánverjann og hógværðin sem hreinlega lekur af Alonso núna, mætti slettast aðeins á Gústa. Stóryrtur fullyrðingaflaumur þessa ágæta 1/2 bróður er ekki í neinum takti við raunveruleikann, ólíkt ædolinu. Renault er ekki samkeppnishæfur þessa stundina og verður ekki þetta árið. Meira að segja Alonso gerir sér grein fyrir því. Renault hefur í gegn um árin komið með margar nýungar inn í formúluna, eins og trubovél árið 1977 og hefur skaffað vélar fyrir fjölda liða. Eftir að Renault keypti Benetonliðið og kom aftur inn í formúluna 2001 var Renault að narta í toppliðin, en velgengni Renault hófst fyrir alvöru þegar dekkjaframleiðandinn Michelin vann með Renault að þróun dekkjanna og stórbættu fjöðrunarkerfi Renault, sem leiddi til þess að Renault hafði visst forskot á andstæðinga sína, enda hefur Renault ekki gengið eins vel eftir að Michelin hætti. Hvort Alonso takist að bæta bílinn eitthvað hjá Renault eða ekki er geðslag hans mun betra en í fyrra og vonandi tekst Gústa að aðlagast sálufélaga sínum áður en hann er endanlega búinn að drulla upp á bak.

Ferrarikveðja01 copy


mbl.is Alonso: Gat ekki gert betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústav J. Daníelsson


O þú ert nú svoldið krútt líka.

Lifi Alonso

Gústav J. Daníelsson, 23.3.2008 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband