Vonandi það sem koma skal !

Engin spurning hver var bestur í nótt.  Frábær sigur og vonandi verða þeir miklu fleiri í næstu keppnum.  Óska öllum McLaren aðdáendum til hamingju.

formula vsjons


mbl.is Besti sigur Hamiltons
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var hótelstýran okkar svona????????????????????

pitbabesÞeir hjá ITV eru með myndir af þessum flottu pitbabeum og voru þessar hátt skrifaðar hjá lesendum. Skyldi hótelstýran okkar í Hollandi hafa verið svona flott þegar hún sprangaði um pittin á Spa í denn. Ég er að eyða tímanum áður en tímatakan í Ástrallalllalíu byrjar og er farinn að röfla eins og skeggjaði ráðherrann, en get ekki verið að lepja neitt nema gos, en bakvaktin skemmir svolítið fyrir þannig brölti. Ég er farinn að verða eins og litla fólkið á aðfangadag, svo spenntur er ég orðinn. Ég er farinn að naga táneglurnar af spenningi, en þeir sem hafa séð mig eiga bágt með að sjá það fyrir sér, en ég er nú samt ennþá það liðugur að ég get klórað mér í hnakkann með tánum. Þetta eru að verða full nákvæmar lýsingar á því hvernig ég dunda mér á kvöldin, svo það er best að hætta þessu rugli og kíkja á æfingarnar í Formúlunni.

Ferrarikveðja01 copy

 

 


Það gerði McLaren líka ! (Vsjóns)

Kimi veit sínu viti.  Aumingja Alli. En eftir því sem predikarinn lang, lang, lang eitthvað hefur verið að segja í mörg ár ætti það ekki að skipta máli hjá Alla að bílinn sé lélegur.  Hann er svo rosalega góður bílstjóri, það ætti að duga Tounge
mbl.is Räikkönen afskrifar Alonso
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann þyrfti nú að láta rannsaka á sér heddið þessi..........

Þetta er sú sérkennilegasta hugmynd til þessa, láta öll liðin byrja fyrir framan Ferrariliðið til þess eins að láta þá fara framúr sér. Væri ekki nær að breikka bara rásmarkið þannig að allir geti byrjað jafnt.

Ferrarikveðja01 copy

 

 


mbl.is Head vill bestu bílana aftast á rásmarkið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitthvað hefði nú heyrst ef þetta hefði verið Ferrariliðið!!!!!!!!!!

McLarenskúrSamkvæmt þessum fréttum ættu þeir Force India og Super Aguri að fá sér risa hjólhýsi og blása út græjupakkann eins og þau geta til að komast í betri bílskúr. Hingað til hefur númeraröðin verið látin ráða, en spæjaragengið fær sérmeðferð og kemst upp með að væla út skárri bílskúr. Þetta vandamál hefur ekki hrjáð Ferrariliðið og hafa þeir fengið sín pláss í samræmi við þann árangur sem þeir ná, en þeir eru líka langbestir í því að vera fremstir. Þeir hjá McLaren Spy kids eru bara vel geymdir þarna á milli Williams og Red Bull og það væri nú gaman að heyra í þeim sem eru búnir að messa sem mest um fyrirgreiðslupólítíkina hjá Ferrari. Á myndinni er Hamilton að leita að skúrnum sínum í Jerez.

Ferrarikveðja01 copy


mbl.is Bílskúr McLaren ekki aftast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg tilviljun??????

F1studio

Ég stal þessari mynd á kappakstur.is og það er gaman að sjá að Röggason er loksins búinn að gera það upp við sig hverjum hann heldur með í formúlunni. Settið hjá Sýn gæti ekki verið meira Ferrarilegra, svo skemmtilega rautt er það. Ef þetta er bara einhver demo teikning, þá sýnir liturinn í það minnsta hvaða liði hönnuðurinn heldur með. Það er nokkuð ljóst að þeir Sýnarmenn leggja mikinn metnað í Formúludagskránna og það verður gaman að sjá útkomuna.

Ferrarikveðja


Bónusbíllinn

Ferrari2008schumi2Ég er nú mest hissa á því að Williamsbíllinn skuli ekki vera bleikur í ár, eins og Bónusfeðgarnir er duglegir að auglýsa í ár. Annars er bíllinn helv. flottur, en það segir ekkert um hvort grísinn komist eitthvað áfram. Það er aðeins einn framleiðandi sem hefur í gegn um árin komið með bíl sem er bæði flottur og góður og það eru hestamennirnir frá Ítalíu á rauða bílnum. Schumi tekur sig líka óendanlega vel út í þessum bíl en þarna er hann að reynslukeyra 2008 útgáfunni í Barcelona um daginn.

FERFLAG_8902

 

Ferrarikveðja Heiðar

 


mbl.is Williams í endanlegu útliti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gústi farinn og ný síða í loftið

Pitwalk 061 minusoneHsBræður koma hérna með nýja síðu í loftið þar sem Gústi flutti sig til í vinnu og tók gömlu síðuna með sér og ætlar að láta að sér kveða á nýrri og Renaultskreyttri síðu. Ég kem til með að sakna bullsins frá honum, en ef fráhvarfseinkenninn verða yfirþyrmandi þá kíki ég bara á síðuna hans og fæ mér afréttara. Ég vona að félagar mínir haldi áfram að tjá sig hérna og leyfi landanum að njóta visku sinnar.

ferrarifondo_small

Ferrarikveðja Heiðar


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband