25.3.2008 | 07:58
Er Gústi ekki búinn að láta hann vita??????
Alonso hefur ekki verið að fylgjast með útsendingum á Stöð2 Sport, þegar einlægur stuðningsmaður tjáði alþjóð að Alonso tæki titilinn í ár með Renault. Það er skelfilegt að vita til þess að svona frábær ökumaður skuli gefast upp, án þess að kynna sér betur hvað Gústav Dalonso er búinn að ákveða fyrir liðið. Vonandi ná þeir félagar að samræma betur aðgerðir sínar fyrir næsta ár og kannski ætti Gústi að kynna sér betur hvað blágula hetjan hans hefur í huga áður en væntingarnar rjúka upp úr þakinu.
Alonso afskrifar Renault úr toppslagnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég held að innst inni sé Gústav búinn að afskrifa hann og ef ekki þá hlítur að styttast í það. Ég meina McLaren gerði það, síðan Raikkonen og núna hann sjálfur. Þá er bara Gústav eftir !
Respect, Vsjóns
HsBræður, 25.3.2008 kl. 09:56
Ég hef enga trú á að Gústi gefi Alonso upp á bátinn. Jafnvel þó hann væri kominn á göngugrind þá myndi hann alltaf vera sá besti.
Kv SHG
HsBræður, 25.3.2008 kl. 11:50
Alli minn er bara að grínast með ykkur hann er sko ekki búin að gefast upp þetta eru bara sögusagnir komnar úr herbúðum hinna liðanna rangtúlkuð og vitlaust misskilin.
Ég skil ekkert í að menn sem að enn halda með Shumackker þótt að hann sé löngu hættur í formúlunni séu að tjá sig um ummæli nútíðarinnar.
Nei Alonso afskrifar maður ekki, aldrei nokkurn tímann.
Ég er enn að bíða eftir því að heyra frá aðdáendum negatívuökumannsins hjá McLaren tjá sig um hvað honum gekk vel í síðasta móti.
Lang best ökumaðurinn á langbesta bílnum eða ?????????
Lifi Alonso
Gústav J. Daníelsson, 25.3.2008 kl. 20:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.